Um Hylju
Nákvæmni og öryggi í fyrirrúmi
Hylja var stofnað árið 2015 af Guðjóni Jónatanssyni og er fyrirtækið enn í dag rekið af honum. Frá upphafi hefur áherslan verið á vönduð vinnubrögð, fagmennsku og áreiðanleika í öllum verkefnum.
Hylja sérhæfir sig í flísalögnum, flotun og míkrósementi fyrir heimili og atvinnuhúsnæði. Verkefnin spanna allt frá nýbyggingum til endurbóta þar sem gæði, nákvæmni og ending eru höfð að leiðarljósi.
Í verkefnum vinnum við í nánu samstarfi við rafvirkja, pípulagningamenn og málara. Með því samstarfi getum við sinnt framkvæmdum frá upphafi til enda og tryggt samræmda og vandaða niðurstöðu.
Markmið Hylju er einfalt: að skila faglegri vinnu þar sem smáatriði, öryggi og ending skipta máli.
Stucc Deco
Stucc Deco í litnum Dolorite og grænn ,,back to the roots" úr Sérefnum
Arkitekt: Berglind Berndsen
Heima spa
Flísar úr Flísabúðinni
Stílhrein walk in sturta